Í framhaldi af fyllerísmáli Sigmundar Ernis Rúnarssonar sýnist mér hafa spunnist fjörug umræða á netinu um brennivín og áhrif þess.
Þar eð sjálfur er ég löngu búinn að fá mig fullsaddan af brennivíni í mínu lífi, þá hef ég ekki lesið mikið af þessu. Ég les þó ævinlega allt sem Teitur Atlason í Gautaborg skrifar á bloggið sitt, og gat ekki annað en kinkað kolli yfir þessum pistli hér.
Þar sem Teitur hafnar því algjörlega að taka nokkurt minnsta mark á drukknu fólki.
En annar bloggari, sem ég les alltaf, Árni Snævarr, svaraði þá Teiti með þessum pistli.
Það er kannski stórhætta á að ég sé að verða alltaf sammála síðasta ræðumanni, en ég skil líka alveg sjónarmið Árna.
Nema einn frasi finnst mér fyrir neðan hans virðingu.
Churchill vann ekki síðari heimsstyrjöldina sauðdrukkinn.
Churchill var að mörgu leyti mjög sniðugur kall og sérstaklega kunni hann vel að koma fyrir sig orði. Og hann stappaði vissulega stálinu í Breta þegar dimmast var útlitið í stríðinu gegn Hitler.
En það er ekki rétt að halda því fram að án hans hefðu þeir gefist upp. Það er næstum örugglega tóm vitleysa.
Og það er tóm vitleysa að halda því fram að hann hafi á einhvern hátt unnið heimsstyrjöldina.
Churchill var slæmur herforingi. Það vissu allir í breska hernum. Sem betur fer fyrir Breta tók hann ekki mjög mikinn þátt í sjálfri strategíunni.
Enda var hann alltaf rorrandi fullur í bunkernum sínum.
Og áhrif hans voru oft mjög til ills.
Þjóðirnar í Austur-Evrópu munu geta frætt þig um það, Árni.
Það er best að gera ekki of lítið úr Churchill. Hann var mjög fyrirferðarmikill kall og á sumum sviðum var hann öflugur og hafði góð áhrif.
En að hann hafi "unnið síðari heimsstyrjöldina" er þjóðsaga sem hann kom á kreik sjálfur.
Fullur eða ófullur.
Ég veit að Árni meinti þetta ekki bókstaflega, en þetta er reyndar svo fráleit fullyrðing að hún er ekki einu sinni nothæf í rökfræðilegum skylmingum.
Að svo mæltu hvet ég fólk til að slá þessu upp í kæruleysi með því að horfa á þessa túlkun á einni ræðu karlsins. Þarna treður hann upp ásamt "Band from the Future".
Blogg
ER HÆGT AÐ VINNA HEIMSSTYRJÖLD FULLUR?
08:04 › 28. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
