Ágæti Jón.
Athygli íslensku þjóðarinnar hefur verið vakin á því að þú sért enn með eitthvað um 10 milljónir króna á mánuði í laun sem framkvæmdastjóri hjá Stoðum, sem áður hét FL Group.
Stoðir eru nú í meirihlutaeigu íslensku þjóðarinnar (gegnum bankana) eftir að hafa farið á hausinn með miklum hvelli, eins og ég held að þú hljótir að muna.
Það þýðir í raun og veru að þú þiggur þessi laun þín frá íslensku þjóðinni.
Og það þýðir í raun og veru að það er verið að skattleggja almenning á Íslandi svo þú getir haldið laununum þínum.
Einstæðar mæður sem eiga varla til hnífs eða skeiðar en borga þó sína skatta samviskusamlega, þær eru að borga launin þín, Jón.
Þótt vafalaust megi flækja það mál eitthvað hvaðan launin þín koma, þá er þetta samt staðreynd og það veistu, Jón.
Eigi að síður virðist þú hafa verið tregur til að semja þig að nýjum veruleika á Íslandi.
Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að samningaviðræður standi yfir við þig um hvort þú viljir góðfúslega lækka launin þín. Þær samningaviðræður virðast hafa tekið langan tíma, sem bendir til að þú sért ekki mjög fús til þeirra samninga.
En Jón.
Nú standa Íslendingar frammi fyrir miklum niðurskurði á ríkisútgjöldum. Það mun því miður hafa í för með sér uppsagnir.
Fólk sem ekkert hefur til saka unnið, sem hvorki hefur bruðlað né gamblað með fjöregg þjóðarinnar, það mun missa vinnuna, meðan landsmenn eru að klóra sig fram úr feninu sem örvita bankamenn, glannafengnir kaupsýslumenn og óhæfir stjórnarherrar hleyptu henni út í.
Láglaunafólk, til dæmis í heilbrigðiskerfinu, verður rekið til að hreinsa upp eftir kaupsýslumennina og bankamennina, vini þína.
Það mun koma heim til sín með tár í augunum einhver næstu mánaðamóta. Og uppsagnarbréfið í hendinni.
Á meðan þumbast þú við að lækka hjá þér launin.
Það er kannski mannlegt, því við hver mánaðamót hækkar talan í bankabókinni þinni náttúrlega um tíu milljónir.
En það er ekki stórmannlegt, Jón.
Það er lágkúrulegt, og skammarlegt.
Mjög lauslega og gróft áætlað sýnist mér að þú þiggir nú í hverjum mánuði jafn há laun og þrjátíu manns á ósköp venjulegum launum, sem enginn er þó of sæll af.
Eða fimmtíu manns á algjörum lágmarkslaunum.
Og þetta ertu búinn að gera frá því fyrirtækið sem þú stýrir komst í eigu einmitt þessa sama fólks.
Finnst þér þetta gott hjá þér, Jón?
Fólk verður rekið í haust, til dæmis af spítölunum, fólk sem gerir miklu meira gagn í vinnunni en þú hefur nokkurn tíma gert.
En þú ... ja, þú átt í samningaviðræðum!
Í rauninni finnst mér að þú ættir að skila þeim launum sem þú hefur fengið frá því að Stoðir komust í ríkiseigu. Mínus einhver tiltölulega eðlileg laun, eins og gengur.
En þú munt ekki gera það, Jón, er það nokkuð?
Með vinsemd en lítilli virðingu,
Illugi Jökulsson
- - - - - -
Stoðir brugðust við hneykslunaröldunni vegna þessa máls, sjá hér.
Blogg
OPIÐ BRÉF TIL JÓNS SIGURÐSSONAR Í STOÐUM
09:32 › 27. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
