ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VAR KENNEDY ALLTAF DAUÐUR?

12:02 › 26. ágúst 2009


Nú finnst mér endilega að ég ætti að segja eitthvað um Edward Kennedy.

Að nú sé lokið ákveðnu tímabili, the end of an era, og blablabla.

Rifja upp eitthvað um Jack og Bobby, hnýta aðeins í Jackie, nefna Chappaquiddick.

Og bölvunina sem virtist fylgja yngri kynslóðum Kennedyanna.

Eitthvað um glæstar vonir, mikil örlög, stóra bresti og hin dýpstu vonbrigði. Um þrautseigju og ofdirfsku og eitthvað svoleiðis.

En mér dettur bara ekkert merkilegt í hug.

Þetta er allt einhvern veginn voðalega liðin tíð.

Edward Kennedy er líklega einn af þeim mönnum sem maður er farinn að ímynda sér að deyi aldrei, en svo þegar hann deyr finnst manni hann alltaf hafa verið dauður.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?