ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

GJAMMANDI SLAGSMÁLAHUNDAR OG GARGANDI PÁFAGAUKAR Á ALÞINGI

18:32 › 26. ágúst 2009


Birgir Dýrfjörð rafvirki skrifar ágæta litla grein í Morgunblaðið í morgun, þar sem hann lýsir yfir vandlætingu sinni á framferði Sigmundar Ernis í ræðustól á Alþingi kvöldið góða, en er samt eiginlega enn hneykslaðri á öðrum þingmönnum sem létu þetta viðgangast.

Þeir röðuðu sér upp til andsvara við ræðu Sigmundar Ernis, þegar þeir heyrðu að hann væri ekki upp á sitt besta, og egndu hann með alls konar tilgangslausum spurningum og frammíköllum til að gera sig enn frekar að fífli en orðið var.

Birgir orðar þetta ekki svona, en þetta er merkingin.

Og ég er sammála honum. Eftir því sem manni heyrist á myndbandinu alræmda, þá var þetta einmitt raunin.

Með því hafa þeir þingmenn, sem hér um ræðir, fært virðingu Alþingis enn lengra út í svaðið en áður - og var þó ekki á bætandi.

Eftir hrunið í fyrrahaust og áfallið sem þjóðin varð fyrir, þá hélt ég að allir myndu reyna að bæta ráð sitt. Verða betri menn, hver á sinn hátt, hver á sínu sviði.

Til dæmis myndu þingmenn stunda málefnalegri vinnubrögð hér eftir en hingað til, hófstilltari en þó markvissari málflutning, og leggja sem mest af innantóma flokkadrætti.

Og ýmsir hafa líklega reynt einmitt það.

En því miður hefur stór hluti þingmanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins ekki reynt nokkurn skapaðan hlut.

Þvert á móti hafa þeir gengið lengra í skrílslátum og barnalegu ódýru málfundaþjarki en við höfum nokkru sinni áður mátt þola.

Svona illa virðast þessir flokkar þola það að eiga nú undir högg að sækja í samfélaginu fyrir sök þeirra á hruninu.

Augljóst er að þessir viðkomandi þingmenn halda sjálfir að þeir séu ógurlega snjallir og sniðugir.

Frammíköllin og tuðið gefa það til kynna. Þeir spana hver annan upp.

Og þær!

En mér finnst þeir ekkert vera nema gjammandi slagsmálahundar og gargandi páfagaukar.

Og fyrir neðan virðingu okkar að þurfa að þola svona niðurlægingu á erfiðum tímum í lífi okkar.

Ef húsið manns er að hruni komið, að er illt að fá rausandi lýð inn á stofugólf sem þykist vera að bjarga einhverju.

Þeir taki til sín, sem eiga.









ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?