ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EXISTA Í ILLU SKAPI

10:59 › 26. ágúst 2009


Ég hitti áðan Róbert Reynisson blaðaljósmyndara heldur gremjulegan.

Hann hafði ætlað að ljósmynda ársfund Exista eins og hann hefur gert á hverju ári undanfarin hálfan áratug og rúmlega það.

Honum hefur alltaf verið tekið með kostum og kynjum, og flest árin hefur hann verið leystur út með smekklegum gjafapoka, þar sem eru allar upplýsingar um viðkomandi fund og ýmislegt smálegt að auki.

Núna var honum hins vegar vísað úr salnum af vörpulegum þungbrýndum öryggisvörðum.

Honum var sagt að hann mætti mynda salinn áður en fundarmenn gengju til sætis, en síðan yrði hann að hypja sig. Ella yrði honum einfaldlega kastað á dyr.

Exista-menn eru greinilega orðnir hvumpnir.

Hvernig skyldi standa á því?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?