Hafi Sigmundur Ernir verið fullur í þingsölum er það áreiðanlega ekki í fyrsta sinn sem það gerist að þingmaður sé drukkinn að "störfum". Að því leyti til er mál hans heldur smátt og ekki mjög merkilegt.
Þó það sé vissulega afar hallærislegt af honum, og beri vott um dómgreindarbrest.
Engum á að líðast að vera fullur í vinnunni.
Hafi Sigmundur Ernir hins vegar logið því að hafa EKKI drukkið vín hið fræga kvöld, eins og frásögn heimildarmanns DV nú í morgun virðist til vitnis um, þá er það öllu verra mál.
Því þá ber hið meinta fyllerí ekki aðeins vott um dómgreindarbrest, heldur líka skort á hreinskiptni.
Þó er málið enn fyrst og fremst persónulegur bömmer Sigmundar.
(Sjá þó ágæta glefsu Teits Atlasonar um málið, hérna.)
Og ég hef sannarlega hvorki forsendur, né mikinn áhuga á að kveða upp úr um sannleikann í málinu.
Það sem mér þykir hins vegar einna verst er að DV upplýsir að hann hafi verið í fínum kvöldverði í boði MP banka þetta kvöld.
Fínt golfmót í boði bankans og svo fínn kvöldverður.
Veitt ótæpilega af rauðvíni, hvítvíni og bjór.
Voru fleiri þingmenn þarna? Það kemur ekki fram.
En manni rennur kalt vatn milli skinns og hörunds við tilhugsunina um að bankar séu aftur farnir að hella brennivíni í vildarvini sína.
Blogg
ERU BANKAR ENN AÐ BJÓÐA BRENNIVÍN?
08:09 › 26. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
