ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EIN BLEKKINGIN ENN

09:25 › 26. ágúst 2009


DV upplýsir í dag að Exista hafi slegið lán í Kaupþingi þegar félagið keypti Símann 2005.

Exista var náttúrlega einn stærsti eigandi Kaupþings. Og samkvæmt "kaupthinking" var það bersýnilega góður bissniss að láta eiganda sínum gríðarlegar upphæðir til svona kaupa.

Nú er Kaupþing farið á hausinn og við sitjum sjálf uppi með skuldina við okkur.

Þessi "einkavæðing" var ein blekkingin enn.

Á sínum tíma var einkavinavæðing Símans þó ein helsta rósin í hnappagat Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar.

Það átti aldeilis að gera svo margt sniðugt og skemmtilegt fyrir alla peningana sem við fengjum.

Rétti upp hönd sem halda að eitthvað skili sér úr þessu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?