Húsnæðisverð í Bandaríkjunum fer nú hækkandi. Það hefur mér alltaf skilist að maður gæti notað sem hinn endanlega mælikvarða á að hin alþjóðlega kreppa væri búin.
Eða botninum að minnsta kosti náð og héðan í frá stefni allt upp á við.
Fregnir um að vöxtur sé hlaupinn í hagkerfið hafa þegar borist frá Þýskalandi, Frakklandi og Japan.
Það er meira að segja ögn bjartara en áður yfir hinum illa stöddu Bretum.
Allir sérfræðingar éta að vísu hver eftir öðrum að við skulum fara gætilega í að lýsa yfir andláti kreppunnar. Það kunni að vera ótímabært. En samt er bjartara framundan.
Nema hér.
Við erum nefnilega svo heppin að hafa fengið að njóta forystu Davíðs Oddssonar undanfarin ár, fyrst í ríkisstjórn og síðan í Seðlabanka.
Ekki mátti taka upp almennilega mynt, ekki mátti tengjast alþjóðasamfélaginu nánar, ekki mátti sporna gegn ofvexti bankanna, ekki mátti anda á auðmenn og útrásarvíkinga (nema þá sem féllu honum persónulega ekki í geð).
Afleiðingin er þessi: Við munum sitja í súpunni í mörg herrans ár meðan kreppan verður að mestu gleymd og grafin annars staðar.
Takk Davíð.
Og Hannes líka, fyrir að hafa ævinlega stappað stálinu í meistara þinn.
Blogg
TAKK DAVÍÐ
15:58 › 25. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
