Menningarnótt er liðin, úthverfafólkið kom niður í miðbæ en Þórarinn Þórarinsson hélt sína kvikmyndahátíð í kjallara í Kópavogi. Ég vona að sem flestir hafi séð sér fært að mæta þangað, þó ég hafi því miður forfallast sjálfur.
Umræður um Menningarnótt snúast eftir á fyrst og fremst um fylleríið sem fylgir í kjölfarið á hinni hefðbundnu dagskrá. Við því er lítið að gera. Ef maður stefnir tugþúsundum fólks niður í miðbæ síðla kvölds og fram á nótt, þá verður fyllerí.
Og sérstaklega ef búið að skapa það andrúmsloft að þetta eigi að vera eitt allsherjar partí.
Sjálfur held ég að Rás 2 beri töluverða sök á því. Fyrstu árin gekk Menningarnótt eingöngu út á litla listviðburði sem finna mátti víða um borgina. Svo vildi Rás 2 skella sér í leikinn og fór að halda risastóra tónleika niðri á höfn, svo nóttin fór að bera keim af útihátíð.
Og þá varð dagskráin eiginlega bara að bið eftir stóru tónleikunum hjá Rás 2. Allt annað féll í skuggann.
Tónleikarnir voru svo fluttir á Miklatún eða Klamratún eða hvað maður vill kalla það, en héldu samt áfram að draga athyglina frá litlu viðburðunum.
Þetta varð allt svo stórt í sniðum, og var hætt að vera lítið og skemmtilegt.
Voðalega "góðærislegt".
Ónefndan tónlistarmann veit ég til dæmis um sem var boðið að spila þrjú lög á Klambratúnstónleikum Menningarnætur en sagðist ekki nenna því nema hann fengi 600.000 krónur fyrir viðvikið.
Það kemur kannski engum á óvart að þetta var sumarið 2007.
Núna voru tónleikarnir í Hljómskálagarðinum. Ég legg til að næsta sumar verði þeir felldir niður og litlu snotru listviðburðunum leyft að eiga þessa nótt.
Blogg
SMÁTT ER FAGURT
11:10 › 25. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
