ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HEIMSKAN ER VERST

20:38 › 25. ágúst 2009


Ég hugsa stundum (í gamni, tek ég fram) að það versta við hrunið hafi hvorki verið spillingin né græðgin.

Gráðugir bankamenn? Tja, það er mannlegt.

Valdaspilltir stjórnmálamenn? Gömul saga, því miður.

Nei, verst hafi verið heimskan.

Þegar kom í ljós hvað við vorum vitlaus.

Við héldum að við ættum eitursnjalla pólitíkusa sem aðrar þjóðir litu jafnvel öfundaraugum.

Við héldum að útrásarvíkingarnir okkar væri öllum öðrum snjallari.

Við héldum að bankamennirnir okkar hefðu náð valdi á gullgerðarlistinni.

Svo kemur í ljós að þetta voru eiginlega allt saman tómir dummkopfs.

Já, hreinustu bjánar!

Ég skal viðurkenna að einn og einn útrásarvíkingur hefur kannski kunnað að reka fyrirtæki, svona framan af að minnsta kosti, en það var undantekning.

Það er einna sárast við þetta allt saman, að þurfa að horfast í augu við hvað "okkar menn" hafa hagað sér hryllilega heimskulega.

Og nú kemur í ljós að við ráðum ekki einu sinni við almennilegt gjaldþrot.

Að gleyma að leggja inn kröfu um fjóra milljarða króna!

Gleyma! Fjórum milljörðum!

Ég meina ... þarf að hafa einhver fleiri orð um þá heimsku?






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?