Margar fréttir undanfarinna mánaða hafa verið ansi dapurlegar; um það þarf ekki að fjölyrða.
Ég held samt að fáar fréttir hafi mér þótti dapurlegri en sú sem spurðist í gær, að eigendur og forráðamenn Exista hefðu gert kröfuhöfum sínum rausnarlegt "tilboð".
Existabræður buðust sem sagt til að reka félagið áfram.
Fyrir þann mikla höfðingsskap vildu þeir fá einn milljarð sem brúka átti í "rekstarkostnað".
Eins og menn voru fljótir að benda á: Það er vandséð að rekstrarkostnaður Exista þurfi að vera nema örlítið brot af þeirri upphæð. Svokallaðar eignir Exista eru nokkur félög sem reka sig sjálf. Einhver giskaði á að "rekstur" Exista, jafnvel þótt félagið lifði, þyrfti ekki að felast í öðru en tveimur mönnum með eitt skrifborð.
En fyrir það vildu Existabræður milljarð.
Þessi frétt var svo hræðilega dapurleg af því hún gaf til kynna hve vonlaust virðist að berja það inn í hausinn á hinum íslensku auðmennum að tímar snekkjunnar og einkaþotunnar eru liðnir.
Ég vonaði í lengstu lög að fréttin yrði borin til baka. Ég vildi ekki trúa því að menn gætu verið svona óforskammaðir. Þetta hlyti að vera einhver misskilningur.
Svo reyndist ekki vera.
Og það er mjög, mjög sorglegt.
Það er bæði sorglegt að Existabræður skyldu láta sér detta í hug að gengið yrði að "tilboði" þeirra. En ennþá sorglegra að þeir skyldu hafa í geð í sér til að fara fram á þennan milljarð.
Blogg
DAPURLEGASTA FRÉTTIN
08:21 › 25. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
