Fyrirspurn til Óðins Jónssonar fréttastjóra RÚV.
Í morgunþætti Rásar 2 var viðtal við Hannes Hólmstein Gissurarson helsta hugmyndafræðing þeirrar frjálshyggju sem nú hefur riðið Íslandi á slig og við Íslendingar munum lengi þurfa að súpa seyðið af.
Í viðtalinu fékk Hannes að útmála þær skoðanir sínar að hrunið hefði verið öllum að kenna nema hinum mikla og ástsæla leiðtoga, Davíð Oddssyni.
Það er gott og blessað. Allir eiga rétt á að fá að lýsa skoðunum sínum, jafnvel þó þessar skoðanir Hannesar gangi í berhögg við skoðanir og niðurstöður nálega allra annarra.
Ég geri því ekki athugasemd við að viðtal hafi verið við Hannes í þessum morgunþætti. Sá þáttur er þess eðlis að þar skýtur ótrúlegasta fólk upp kollinum, og með hinar undarlegustu skoðanir.
Aftur á móti er mér fyrirmunað að skilja hvers vegna viðtalið var endurflutt að stórum hluta í aðalfréttatíma RÚV klukkan 12.20 - rétt eins og um stóra og mikla "frétt" hefði verið að ræða.
Mér þætti vænt um að þú útskýrðir fyrir mér hvaða fréttastefna er í því fólgin að þessi sértrú Hannesar hafi verið meðhöndluð sem "frétt" af svo virðulegri stofnun sem þú stýrir.
Virðingarfyllst,
Illugi Jökulsson
Blogg
FYRIRSPURN TIL FRÉTTASTJÓRA RÚV
12:43 › 24. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
