Eftir alllangt hlé er ég aftur farinn að láta verulega að mér kveða á hlaupabrautinni í líkamsræktarstöðinni Laugum!
Og þar sem ég hleyp/skokka/dragnast áfram á brautinni og horfi yfir Laugardalslaugina, þá rifjast upp fyrir mér furðuverk sem ég hef aldrei skilið.
Hið mikla steypuverk sem eru áhorfendapallarnir við Laugardalslaugina.
Þetta er einhver skrýtnasti og tilgangslausasti arkitektúr í Reykjavík, og þótt víðar væri leitað. Ég veit ekki hvaða fáránlegu fantasíur menn höfðu kringum 1970 (þegar þetta var reist) um þúsundir áhorfenda sem hvettu knáa sundmenn áfram á utanhúss sundmótum, en svo mikið er víst að þær fantasíur rættust ekki.
Auðvitað ekki.
Ég hef aldrei séð neinn áhorfanda á þessum miklu pöllum, enda eru auðvitað engin sundmót haldin utanhúss.
Einstaka sinnum hef ég séð fáeinar hræður í sólbaði á þessum pöllum en það er allt og sumt.
Þegar Laugardalslaugin var endurnýjuð fyrir allnokkrum árum hélt ég að tækifærið yrði gripið til að rífa þetta steypuverk, sem er svo grátlegt dæmi um dómgreindarleysi, en það var ekki gert.
Milljónum króna var fleygt í viðhald á þessum pöllum sem enginn notar.
Í staðinn hefði verið hægt að endurnýja gufubaðið í Laugardalslauginni, sem er hreint út sagt til skammar.
Örlítill gluggalaus skápur fyrir alla þessa stóru laug, og óþægileg sæti úr plasti.
Gufuböðin á líkamsræktarstöðinni eru til dæmis svo miklu betri en þessi hallæris skápur, þó þau séu niðri í kjallara - jafnvel bara gufubaðið í "almennu deildinni" í Laugum, hvað þá öll fínu gufuböðin í lúxusdeildinni.
Er til of mikils mælst að forráðamenn Laugardalslaugar eyði ekki framar milljónum í viðhald á þessari tilgangslausu steypuklessu sem áhorfendapallarnir eru, og setji peninga sína frekar í betra gufubað?
En reyndar eru þessir áhorfendapallar kannski bara ágætis áminning um að það þurfti ekki "útrásina" til að við Íslendingar sýndum merki um stórmennskubrjálæði, dómgreindarleysi, fíflaskap og bruðl!
Blogg
FURÐUVERKIÐ VIÐ LAUGARDALSLAUGINA
14:34 › 24. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
