ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EF ÞAÐ HEFÐI NÚ RIGNT Í ALLT SUMAR!

15:13 › 17. ágúst 2009


Nú er farið að hellirigna í Reykjavík. Það er heldur sjaldgæft, þetta sumarið. Reyndar hvarflar oft að mér hvílík guðsblessun það er, hvað veðrið hefur verið óvenjulega gott og bjart í sumar.

Hugsið ykkur bara ef við hefðum þurft að þola ógurlegt rigningasumar, eftir býsnaveturinn mikla.

Ég man eftir sumrum þar sem rigndi nánast upp á hvern dag og dumbungur og drungi ríkti flesta daga. Og ég má varla til þess hugsa hvernig þjóðinni liði ef sumarið nú hefði verið af þeirri gerðinni.

Ég er ekki viss um að þjóðin hefði lifað það af.

Söguritarar framtíðarinnar mega ekki gleyma hinu góða veðri sumarið 2009 þegar þeir reyna að skilja hvernig þjóðin tókst á við hrunið.

Við svona viðkvæmar aðstæður hefur jafnvel veðrið pólitíska merkingu.







ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?