Í DV í dag er heilmikil grein sem ég skrifaði um Bjart í Sumarhúsum og hversu varasamt er að draga lærdóma af þessari persónu Halldórs Laxness. Margir vilja nota Bjart fyrst og fremst sem tákngerving fyrir frelsisþrána í brjósti mannsins, en sjálfum finnst mér Bjartur vera alveg hræðileg manneskja.
Og ótækt að nota þetta skrímsli sem jákvætt tákn í umræðu.
En það hafði gert bóndinn Þorgrímur Einar Guðbjartsson í viðtali í Mogganum um síðustu helgi, Einar Már Guðmundsson gerir það oft og Ögmundur Jónasson gerði það í pistli á bloggsíðunni sinni um daginn. Ég er svona að agnúast út í notkun þeirra á Bjarti.
En fyrst ég minnist á Ögmund, þá verð ég að segja að ef loksins fæst nú botn í Icesave-samninginn, þá sýnist mér Ögmundur hafa vaxið stórlega sem stjórnmálamaður. Hann var augljóslega ekki sáttur við samninginn og hélt því til streitu þar til viðunandi niðurstaða virtist liggja fyrir, án þess þó að keyra málið í einhverjar pólitískar ógöngur.
Gott hjá honum - þó ég hafi ekki verið sáttur við álit hans á Bjarti í Sumarhúsum!
Blogg
SKRÍMSLIÐ Í SUMARHÚSUM OG ÖGMUNDUR
14:37 › 14. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
