ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

MISNOTKUN Á TJÁNINGARFRELSINU

13:13 › 14. ágúst 2009


Tjáningarfrelsið er hið fegursta frelsi. Sem allir hafa rétt á að nota sér.

En þegar maður les grein í Mogganum í dag eftir Kjartan Gunnarsson ...

Manninn sem átti einna mestan þátt í því að Björgólfarnir fengu Landsbankann á spottprís gegn því að vera sjálfur áfram innsti koppur í búri í bankanum og varaformaður stjórnar ...

Manninn sem makaði krókinn á gróðabralli Landsbankans í útrásinni og hreyfði aldrei andmælum við framferði bankans ...

Manninn sem hefur áratugum saman verið feitasta kóngulóin í spillingarvef Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins ...

Manninn sem lét sér vel líka Icesave-reikningana, hina "tæru snilld" Sigurjóns Þ. Árnasonar og Halldórs J. Kristjánssonar ...

Manninn sem aldrei andaði út úr sér áhyggjum af því að ef illa færi kynni íslenska þjóðin að sitja í súpunni ...

Manninn sem aldrei beitti sér á neinn hátt til að skera okkur niður úr þeirri snöru sem hann og vinir hans voru búnir að hengja okkur upp í ...

... þegar maður les sem sagt grein um Icesave eftir þennan mann, þá finnst mér það ekki góð notkun á tjáningarfrelsinu.

Heldur argasta misnotkun.

Æjá, mér finnst það.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?