ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SÆLT ER SAMEIGINLEGT SKIPBROT

18:26 › 16. júlí 2009


Það er athyglisverð tilhugsun að nú þegar sótt verður um aðild að ESB eru í sárum tveir áhrifamestu stjórnmálaleiðtogar landsins á ofanverðri 20. öld og fram yfir aldamót.

Menn sem sífellt elduðu grátt silfur og varla ofsagt að þeir hafi nánast hatað hvor annan.

Menn sem voru iðulega taldir á andstæðum pólum stjórnmálanna en urðu þó hvor á sinn hátt tákn útrásarinnar ægilegu.

Og voru hjartanlega sammála í andúð sinni á Evrópusambandinu.

Þetta eru þeir Davíð Oddsson og Ólafur Ragnar Grímsson.

Það var beinlínis hornsteinn í utanríkispólitík Davíðs (ef sæma á hugmyndakjarr hans um útlönd svo virðulegu nafni) að hatast út í ESB.

Og Ólafur Ragnar gat aldrei leynt því hve honum hugnaðist sambandið lítt.

Kannski réðu persónulegar ástæður mestu hjá þeim báðum.

Að þeim leist ekki á tilhugsunina um að verða smáfiskar í stórri tjörn Evrópusambandsins, í stað þess að vera hákarlar hér heima.

Nú sitja þeir báðir og syrgja.

 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?