Baldur Guðlaugsson var fyrir um 35 árum í Eimreiðarhópnum svokallaða. Þetta var hópur frjálshyggjustráka sem voru óþreytandi að útbreiða fagnaðarerindið.
Davíð, Hannes Hólmsteinn, Jón Steinar Gunnlaugsson, Þorsteinn Pálsson, Geir Haarde, og fleiri. Sjá hér.
Þeir níddu skóinn af ríkinu en skriðu þó flestallir uppí ríkisjötuna fyrr eða síðar.
Og hafa makað krókinn þar eins og feitar lirfur.
Baldur Guðlaugsson varð ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu þegar almennur lögfræðipraxís var orðinn of "wild" fyrir hann.
Í september síðastliðnum fór Baldur á fund í London um málefni Landsbankans. Þar kom fram að í óefni stefndi hjá bankanum - og Icesave-reikningunum.
Með því að taka af skarið þegar heim kom hefði Baldur getað bjargað miklu. Hann hefði átt að linna ekki látum fyrr en þessir eitruðu reikningar væru fluttir af höndum þjóðarinnar.
En Baldur gerði ekkert þvíumlíkt.
Hann seldi bara sín eigin hlutabréf í bankanum.
Mikilfenglegur embættismaður í þjónustu þjóðarinnar, finnst ykkur ekki?
Það varð svo eitt af helstu markmiðum Geirs Haarde á lokadögum ríkisstjórnar sinnar að halda hlífiskildi yfir Baldri, félaga sínum úr Eimreiðarhópnum. Fram í rauðan dauðann.
Um leið og hann varði sjálfan foringja Eimreiðarmanna, Davíð Seðlabankastjóra.
Þegar minnihlutastjórnin tók við í febrúar var Baldri ýtt til hliðar.
Af einhverjum dularfullum lagalegum ástæðum virðist ekki hægt að reka manninn.
Þó hann hafi í fyrsta lagi gert sig beran að algjörri vanhæfni í starfi með því að gera ekkert (frekar en margir aðrir, vissulega) þegar hrunið var að bresta á.
Og þó hann hafi í öðru lagi gert sig sekan um mjög vafasamt hátterni (svo kurteislega sé til orða tekið) þegar hann seldi bréfin sín.
Reddaði sínum eigin peningum - skítt með þjóðina. Þjóðin á alltaf að borga fyrir Eimreiðarhópinn.
En nú virðist hafa orðið þrautaráðið fyrst ekki var hægt að losna við Baldur, að gera hann að ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu.
Fyrirgefiði - hvusslags lágkúra er þetta?!
Og umfram allt ... hvernig í veröldinni getur Baldur Guðlaugsson hugsað sér að hanga eins og hundur á roði á stöðu sinni, þótt allir í nýju stjórninni og langstærstur hluti þjóðarinnar í ofanálag fyrirlíti hann innilega?
Hann ætlar samt að mjólka nokkrar krónur í viðbót af þjóðinni.
Hann á það svo vel skilið, ekki satt?
Á maðurinn enga sjálfsvirðingu? Enga skömm?
Til hamingju, Baldur. Ef það væru veitt lágkúruverðlaun á Íslandi myndir þú fá þau.
Blogg
TIL HAMINGJU, BALDUR GUÐLAUGSSON!!
16:59 › 9. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
