ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BURT MEÐ HANN, BURT, BURT!

20:36 › 9. júní 2009


Eigum við nú að þurfa að þola langdregna og kvalafulla sögu þar sem enn einn sjálfstæðismaðurinn, nú Gunnar Birgisson, engist á önglinum en neitar að segja af sér?

Guð forði okkur frá því.

Því miður mun guð samt ekki gera það. Guð er, hef ég eftir öruggum heimildum, í Sjálfstæðisflokknum og finnst ekki að spilltir, vanhæfir "leiðtogar" eigi nokkru sinni að segja af sér.
Það væri nefnilega eins og að nefna snöru í hengds manns húsi uppí himnaríki.

En fyrst guð gerir ekkert í málinu verður Framsóknarflokkurinn að gera það.

Og það strax.

Ég þoli ekki tilhugsunina um langdregin fjörbrot Gunnars í embætti.

Þar sem hann býður upp á annað eins píp og hann gerði í viðtalinu við Helga Seljan.

Burt með hann, burt, burt!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?