Sigurjón Þ. Árnason fyrrum bankastjóri Landsbankans var í viðtali við Rósu Björk fréttamann RÚV í hádeginu.
Hann sagðist þess fullviss að eignir Landsbankans myndu duga fyrir Icesave-skuldunum.
Úr því sem komið er, vona ég náttúrlega að það reynist rétt.
Á hinn bóginn lýsti svar Sigurjóns við einni spurningu Rósu Bjarkar algjörri blindu mannsins á það sem hann hefur á samviskunni.
Hann er maðurinn sem er ábyrgur fyrir Icesave. Hann er maðurinn sem ákvað að taka þá áhættu að ef illa færi sæti íslenska þjóðin uppi með skellinn af hinni "tæru snilld" hans.
Svo Rósa Björk spurði hann, eitthvað á þessa leið (en ekki alveg orðrétt): "Hvernig finnst þér að vera ábyrgur fyrir því að íslenska þjóðin þarf að taka á sig þessar skuldir?"
Sigurjón - sem hefur til þessa kostað íslenska þjóð ómældan álitshnekki í útlöndum, sem hefur nú þegar kostað þjóð sína gífurleg fjárútlát og gæti (ef allt færi nú á versta veg) átt eftir að kosta þjóð sína mörg hundruð milljarða - hann gat ekki drullast til að segja: "Mér þykir það leiðinlegt."
Hvað þá heldur: "Fyrirgefið."
Nei, það væri náttúrlega til of mikils mælst.
Hann endurtók bara tugguna um að eignir bankans mundu vafalaust duga fyrir skuldunum.
Það er sem sagt allt í lagi að brenna til grunna heilt hús og engin þörf á að biðjast afsökunar, ef maður getur svo (kannski!) slett andvirði hússins í íbúana sem standa eftir í brunarústunum.
Sorrí? Nehei. Ég á fyrir þessu! Hérna, greyin!
Þetta er hugarfar útrásarinnar.
Sigurjón: Farðu. Hunskastu burt. Farðu að éta gull á snekkjunni hans Björgólfs Thors. Ekki vera fyrir okkur hér.
Ekki fyrst þú getur ekki einu sinni hvíslað að þér þyki þetta leitt.
Blogg
GAT EKKI DRULLAST TIL AÐ SEGJA SORRÍ!
13:52 › 8. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
