ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

MEÐVITUÐ BREIKKUN Á RASSGATI

09:55 › 30. júní 2009


Kristján Möller samgönguráðherra virðist fá að ráða því að Vaðlaheiðargöng verði tekin fram yfir breikkun Suðurlandsbrautar.

Þótt akstur þar sé bæði margfalt meiri og margfalt hættulegri en um Vaðlaheiði, sjá hér.

Vaðlaheiðargöng eru auðvitað bara dæmigert gæluverkefni kjördæmapotara. Ég vonaði satt að segja að svonalagað væri fyrir bí.

Vaðlaheiðargöng eru "meðvituð breikkun á rassgati", eins og Dagur heitinn Sigurðarson orðaði það um belging smákalla í stórum embættum.

En breikkun Suðurlandsvegar verður að bíða.

Þótt þar liggi líf við en ekki atkvæði handa Kristjáni Möller.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?