Ég sendi um daginn opið bréf til Björgólfs Thors Björgólfssonar og spurði hvort hann ætlaði ekki örugglega að leggja sitt af mörkum til að greiða upp Icesave-skuld íslensku þjóðarinnar, þegar búið væri að selja eigur Landsbankans.
Ég hef ekki fengið svar frá Björgólfi Thor enn, og er raunar farinn að undrast það.
En í staðinn fékk ég af einhverjum ástæðum svar frá Andrési Magnússyni, svohljóðandi.
Ekki veit af hverju minn góði kunningi Andrés sér ástæðu til að taka að sér að skjóta skildi fyrir Björgólf Thor eða drepa á dreif umræðu um ábyrgð hans.
Ábyrgð sem er mikil (sjá til dæmis hér) þar sem Björgólfur Thor var einn af aðaleigendum Landsbankans.
Ég verð að segja að tilraun til að breiða yfir umræðu um það með því að upphefja nýja um einhverja ógurlega sök Samfylkingarinnar á Icesave-skuldinni (!) þykir mér í besta falli hótfyndni.
Eða í versta falli dæmi um þann lágkúrulega flokkspólitíska dilkadrátt sem of lengi hefur skaðað íslenskt samfélag.
Því það eru allnokkrir sem þurfa að axla sína ábyrgð á Icesave áður en kemur að Samfylkingunni, trúi ég. Þótt vissulega eigi hún sína sök.
Og Samfylking beri líka sína miklu ábyrgð á samningunum við Breta og Hollendinga - sem við Andrés vitum báðir að engin leið var að komast undan, þótt deila megi um hvort ná hefði mátt betri kjörum.
En er ekki full ástæða til að leyfa þeim sem bera mun meiri ábyrgð, og græddu persónulega stórfé á hinni "tæru snilld" Icesave-reikninganna, að horfast í augu við þá ábyrgð sína?
Og svara þjóð sinni um hvernig þeir ætli að axla hana?
Ég ætla þess vegna ekki að svara spurningunni frekar, Andrés minn. Vona að þú skiljir það. Ég svara heldur ekki fyrir Samfylkinguna.
- - -
Viðbót.
Þegar ég skrifaði þetta snemma í morgun var ég hreinlega ekki búinn að athuga tölvupóstinn minn og hafði því ekki veitt því athygli að ég var raunar búinn að fá svar frá Björgólfi Thor. Það kom í gærkvöldi. Því segi ég ranglega hér að ofan að svar sé ekki komið.
Blogg
TIL ANDRÉSAR
08:02 › 23. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
