ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BEÐIÐ EFTIR BJÖRGÓLFI THOR

11:09 › 22. júní 2009


Ekki hefur mér enn borist svarbréf frá Björgólfi Thor við þessu bréfi hér. Ég bíð þó rólegur enn.

Reyndar hvíslaði að mér lítill fugl áðan að Björgólfur Thor væri reyndar á Íslandi þessa dagana, en ekki á Kýpur eða einhvers staðar eins og ég hélt. Hann er sagður vera hér í einhverjum yfirheyrslum vegna bankahrunsins, annaðhvort hjá rannsóknarnefnd Alþingis eða sérstökum saksóknara.

Jafnframt fylgdi sögunni að Björgólfur Thor hefði brugðið sér á skemmtistaðinn B5 um helgina, en ekki mætt sömu góðu móttökunum og hér í eina tíð, þegar jafnt Geir Haarde sem heldra fólk skemmtanalífsins tók Björgólfi Thor ævinlega opnum örmum þegar hann kom til landsins.

Nei, nú er þvert á móti sagt að hellt hafi verið yfir hann brennivíni í gríð og erg.

Hvort eitthvað er hæft í þessari sögu hef ég ekki minnstu hugmynd um. Það tek ég skýrt fram. En ef Björgólfur Thor er á landinu ættu alla vega að vera hæg heimatökin að svara minni kurteislegu spurningu. Svarið þarf bara að vera "já" eða "nei".



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?