ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

UPPLÝSINGAR OG ALMENNINGSÁLIT

09:16 › 21. júní 2009


Þetta hér er alveg rétt hjá Teiti Atlasyni.

Ríkisstjórninni gengur alveg undarlega illa að tileinka sér þau opnu og gegnsæju vinnubrögð sem við höfðum vonað að yrði óaðskiljanlegur fylgifiskur þess þegar fólkið á Austurvelli sótti völdin handa þessari stjórn.

Sem er hlutur sem þessi stjórn má aldrei gleyma. Völdin voru sótt handa henni. Hún er aðeins með þau að láni.

En skortur á upplýsingum og gegnsæi gæti reynst stjórninni afar dýrt.

Hún var til dæmis á góðri leið með að missa frá sér almenningsálitið út af Icesave-reikningunum, alveg að óþörfu, held ég.

Samningarnir við Breta og Hollendinga eru auðvitað ekki góðir. En jafnvel þeir sem töldu að þeir væru ill nauðsyn voru orðnir pirraðir og reiðir yfir klaufagangi og feluleik stjórnarinnar.

Af hverju voru þær upplýsingar sem hér koma fram bara ekki birtar strax, þegar í ljós kom hvað fólk var reitt yfir því að fá ekki að sjá samninginn og efaðist um orð Steingríms og Jóhönnu um að það væru Bretar og Hollendingar sem ekki vildu birta hann?

Þannig er með fleiri mál.

Líklega eru forystumenn ríkisstjórnarinnar og helstu ráðgjafar þeirra einfaldlega of gegnsýrð hinum gömlu vinnubrögðum stjórnmálamanna til að geta tileinkað sér ný á svipstundu.

En þá eiga opinskárri samverkamenn þeirra einfaldlega að taka frumkvæðið og kenna þeim til nýrra verka.

Sjálfur held ég að stjórnin ætti að koma sér upp einhvers konar talsmanni, sem hefði það hlutverk eitt að tala við þjóðina.

Ekki bara að sitja einhvers staðar og svara í símann ef fjölmiðlar hringja eins og fjölmiðlafulltrúar gera nú.

Heldur hefði frumkvæði að því að stíga út úr ráðuneytunum - og tala til fólks. Bæði gegnum fjölmiðla en líka milliliðalaust.

Hann gæti þess vegna staðið úti á götuhorni öðruhvoru og spjallað. Eða heimsótt vinnustaði, ef þess væri óskað.

Hvort talsmaðurinn ætti að hafa bakgrunn í pólitík eða fjölmiðlum, eða einhverju allt öðru, veit ég ekki. En hann þarf að hafa ástríðu til að upplýsa fólk - og auka marghrjáð gegnsæið.

Hann þarf að vilja sjálfur upplýsa - ekki bara vera farvegur fyrir mis-opinskáa ráðherra.

Hann (eða hún, auðvitað!) ætti að hafa víðtækar heimildir til að spyrja ráðherrana daglega: "Hvað ætlar þú nú að gera, þjóðinni til gagns í dag?" Og ráðherrar yrðu að svara, og síðan færi talsmaðurinn og segði fólki frá þessu.

Allar upplýsingar lægju alltaf fyrir um starf stjórnarinnar - nema þá ef eitthvað alveg sérstakt kæmi í veg fyrir.

Stjórnin mun fljótlega uppgötva að betri og greiðari upplýsingagjöf auðveldar störf hennar sjálfrar mjög verulega. Það þarf þá ekki að eyða tíma hvorki stjórnarinnar né þjóðarinnar í alls konar misskilning, pirring og rugl.






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?