ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BJÖRGÓLFUR THOR SVARAR EKKI ENN

14:17 › 21. júní 2009


Nú er sólarhringur síðan ég skrifaði Björgólfi Thor Björgólfssyni opið bréf um hvort hann muni ekki örugglega ganga glaðbeittur í að borga það sem eftir kann að standa af Icesave-skuldum okkar Íslendinga þegar búið verður í fyllingu tímans að selja eigur Landsbankans.

Hann hefur ekki svarað ennþá, en ég bíð rólegur. Það er vafalaust mikið að gera við alþjóðlegar fjárfestingar um þessar mundir, en ég treysti því að hann svari við allra fyrsta tækifæri.

Og í þessu sambandi er kannski rétt að halda einu til haga.

Björgólfur Thor sagði í viðtali í fyrrahaust að hann hefði róið að því öllum árum síðustu dægrin fyrir hrun Landsbankans að koma Icesave-reikningunum úr ábyrgð íslensku þjóðarinnar. Bretar hefðu verið til í tuskið, sem og hann sjálfur.

Ríkisstjórnin og/eða Seðlabankinn hefðu hins vegar ekki brugðist nógu hratt við og því hefði farið sem fór.

Það kann vel að vera rétt, og þá er ábyrgð ríkisstjórnar Geirs Haarde og/eða Seðlabankans blýþung í þessu máli.

Og vel skiljanlegt að Björgólfur Thor beri af þeim sökum þungan hug til þessara aðila.

Á hinn bóginn leysir það hann þó ekki undan ábyrgð af Icesave-reikningunum. Því þær skuldir, sem fyrirtæki hans efndi til, falla á alla íslensku þjóðina en ekki á þær örfáu persónur sem kunna að hafa klúðrað málum síðastliðið haust.

Bara svo því sé til skila haldið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?