ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VALTÝR GETUR ÞÁ EINBEITT SÉR AÐ LALLA JOHNS

11:06 › 20. júní 2009


Ekki verður betur séð en Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra hafi leyst afar vel vandamálið sem reis eftir að í ljós kom að ráðgjafinn Eva Joly var hundóánægð með skipan rannsóknarinnar á bankahruninu.

Í fyrsta lagi hrökk Ragna ekki í baklás, sármóðguð yfir því að Eva Joly færi ekki hefðbundnar kerfisleiðir í gagnrýni sinni.

Það hefði verið svo innilega íslenskt.

Ragna lýsti sig þvert á móti strax reiðubúna til að taka mark á gagnrýninni, sagðist taka hana til sín og lofaði að ganga hratt í að leysa málið.

Og það gerði hún, meðan aðrir fóru að fjargviðrast við yfir að Eva Joly hefði jafnvel leyft sér að móðga Valtý Sigurðsson ríkissaksóknara!

Með því að halda því fram að hann yrði að víkja.

Eða færu að kvarta yfir því að Eva Joly yki "tortryggni í landinu", sem var vægast sagt fyndin fullyrðing.

Ragna lýsti því að vísu strax yfir að hún hefði ekki vald yfir Valtý en fór hvorki að stunda hártoganir við Eva Joly út af skoðunum hennar á Valtý né fór að þumbast um hvað þetta væri gífurlega erfitt mál.

Meðan Valtýr sjálfur setti upp sitt yfirlætisfulla glott lét Ragna bara hendur standa fram úr ermum og leysti málið.

Valtýr getur nú setið áfram, hirt launin sín og sótt Lalla Johns til saka með reglulegu millibili.

Á meðan öll alvörumál fara framhjá honum.

Þar hæfir kjaftur skel, báðir eru mennirnir ljóslega miklir á lofti.

Gott hjá Rögnu dómsmálaráðherra.

Megi aðrir ráðherrar sýna ámóta skörungsskap.









ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?