Sæll Björgólfur Thor.
Við þekkjumst nú ekki, en ég vona að þetta bréf hitti þig fyrir hressan og kátan á Kýpur eða hvar annars staðar sem þú hefur kosið að slá niður tjöldum þínum um þessar mundir.
Okkar á milli sagt held ég að það kunni að vera hárrétt mat hjá þér að vera ekki mikið að þvælast hér heima á Íslandi þessa mánuðina. En við vonum að sjálfsögðu báðir að það standi til bóta.
En erindi mitt er að leggja þig eina einfalda spurningu.
Ég hef ekki orðið var við að íslenskir fjölmiðlar hafi reynt að leita þig uppi til að leggja þessa spurningu fyrir þig, sem er mjög undarlegt, en ég verð þá bara að gera það sjálfur.
Eins og þú veist er nú allt útlit fyrir að íslenska ríkið - það er að segja íslenska þjóðin - þurfi að taka á sig mörg hundruð milljarða skuldir vegna Icesave-reikninga Landsbankans, sem var að stórum hluta í þinni eigu.
Reiknað er með að eignir Landsbankans komi á móti að stórum hluta, en þótt við vonum það besta hvað það snertir, þá gætu samt staðið eftir tugir milljarða, jafnvel meira, ef allt færi nú á allra versta veg.
Þótt Landsbankinn og Icesave-reikningarnir hafi kannski ekki verið þungamiðjan í þínum persónulega bissniss, þá er þó ljóst að auðvitað naust þú mjög góðs af þeirri "tæru snilld" sem reikningarnir þóttu vera á sínum tíma.
Því er spurning mín til þín þessi:
Nú þegar ljóst virðist að mjög háar upphæðir falli á þjóðina, vegna þeirrar peningamaskínu þinnar og þinna sem Icesave var, munt þú þá ekki örugglega leitast af fremsta megni við að borga þá alla upphæð sem afgangs verður þegar eignir Landsbankans hafa verið seldar?
Ég veit ekki hversu mikla peninga þú átt eftir hremmingar undanfarinna missera, kannski veistu það ekki almennilega sjálfur, en spurningin snýst heldur ekki um það - heldur um vilja og viðleitni.
Ég vona að einhverjir vina þinna veki athygli þína á þessu bréfi og hvetji þig til að svara því. Ef þér er enn annt um orðstír þinn á Íslandi gæti það gert þér gagn að svara ofangreindri spurningu heiðarlega - og helst einfaldlega bara með jái eða neii.
Málið þarf í bili ekkert að vera mikið flóknara en það.
Ég mun birta þetta opna bréf á bloggsíðu minni, Trésmiðjunni, og hún stendur svari þínu ævinlega opin.
Með kveðju ...
Blogg
OPIÐ BRÉF TIL BJÖRGÓLFS THORS
12:40 › 20. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
