Lögfræðingar Kaupþings samþykkja transaxjónir Kaupþingsmanna.
Og viðskiptaráðherra tekur það gott og gilt. Virðist ekki ætla að láta reyna á það frekar.
Lögfræðingar Landsbankans samþykkja transaxjónir Landsbankamanna.
Hinar mjög mjög svo dularfullu lánveitingar Sigurjóns Árnasonar.
Ásmundi Stefánssyni bankastjóra Landsbankans til hróss virðist hann ekki ætla að láta það bara gott heita.
Þessar furður allar eru því miður alveg áreiðanlega ekki það síðasta sem mun koma upp úr kafinu um það hvernig "yfirstéttin" í þessu landi óð um og saug upp fjármagn eins og kókaín í silfurnös.
Mörg dæmi þekkjum við - mörg önnur eiga líklega eftir að koma í ljós.
Þessi mál eru áminning um að ef Sigríður Benediktsdóttir verður látin hætta í rannsóknarnefnd Alþingis fyrir að voga sér að tala um græðgi og slakt eftirlit, þá væri það ekkert annað en klám af versta tagi.
Og þau eru áminning um að maður sem fyrir einhver undarleg mistök trassar að senda Kaupþingsmál áfram í kerfinu mánuðum saman, hann á ekki heima í embætti ríkissaksóknara.
Og allra síst hefur sá maður efni á að glotta yfirlætislega og gera lítið úr öðru fólki sem vill rannsaka málefni "yfirstéttarinnar" af meiri ákafa en hann.
Ég á við Valtý Sigurðsson sem enn situr í sínu embætti, einhverra hluta vegna.
Vonandi verður hann farinn í fyrramálið.
Blogg
KÓKAÍN Í SILFURNÖS
00:33 › 16. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
