ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞESSIR ANDSKOTANS ÚTLENDINGAR!

20:56 › 15. júní 2009


Meðan bankaæðið stóð hér sem hæst reyndu útlendingar aftur og aftur að vara okkur við.

Viðbrögðin voru sorglega oft þau að hnussa fyrirlitlega.

Útlendingar! Hvaða vit hafa þeir á okkar málum? Eins og þeir vilji okkur eitthvað vel?! Þeir skilja ekki velgengni okkar og hæfileika. Þeir eru bara uppfullir af öfund!

Og ef einhverjir Íslendingar glöptust til að taka undir með þeim, þá voru ásakanir um landráð skammt undan.

Svo hrundi allt, eins og hinir svartsýnni útlendingar höfðu spáð.

Núna erum við í djúpum skít og útlendingar segja okkur að við verðum að gera svo vel að standa fyrir máli okkar.

Semja um Icesave-reikningana og vera tilbúin til að borga okkar part af þeim miklu skuldum, ef hinar margfrægu eignir Landsbankans duga ekki.

Viðbrögð sumra eru undarlega keimlík því sem nefnt var hér að ofan.

Að hnussa - kannski ekki beinlínis með fyrirlitningu, heldur frekar viðbjóði.

Útlendingar! Hvaða vit hafa þeir á okkar málum? Eins og þeir vilji okkur eitthvað vel? Þeir skilja ekki raunir okkar og veikleika. Þeir ætla bara að reyna að sölsa undir sig auðlindir okkar!

Og ásakanir um landráð eru löngu farnar að grasséra!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?