ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NÝ VINNUVIKA, SAMI RÍKISSAKSÓKNARI

08:01 › 15. júní 2009


Jæja!

Þá er hafin ný vinnuvika.

Og enn sýnist mér að Valtýr Sigurðsson sé ríkissaksóknari.

Heimasíða embættisins gefur að minnsta kosti á öngan hátt til kynna að hann hafi sagt af sér, né farið í svo sem eins og ársfrí.

Og hvernig hef ég séð fréttir um að Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson í rannsóknarnefnd Alþingis séu á útleið fyrir það frumhlaup sitt að ætla að reka Sigríði Benediktsdóttur úr nefndinni - að kröfu Jónasar Fr. Jónssonar!

Þessir herramenn allir vonast væntanlega til að mál þeirra séu gleymd.

Það væri svo óskaplega íslenskt.

En ég vona að nú séu nýir tímar. Væri hægt að fá svör frá þessum mönnum - annað en ýmist hótfyndni eða þumbaraskap?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?