Nú á að hrekja Bókabúð Máls og menningar úr húsnæði sínu á Laugaveginum.
Hún borgar víst ekki nógu háa leigu, og verður að fara.
Það þykir mér satt að segja eitthvert mesta óbótaverk og svívirða sem hægt væri að vinna í bæði skipulags- og menningarmálum höfuðborgarinnar.
Bókabúðin á mjög stóran hlut í því lífi sem enn er á Laugavegi.
Þegar Árni Einarsson framkvæmdastjóri MM fann upp á því að hafa opið til klukkan tíu á kvöldin, þá gerbreytti það kvöldlífinu í miðborg Reykjavíkur í einni svipan.
Ég þekki ekki fasteignamarkaðinn við Laugaveginn í þaula, en af hverju er sú leiga sem bókabúðin hefur borgað hingað til ekki nægjanleg?
Þarna hefur búðin verið í áratugi og staðið af sér bæði góðæri, kreppur og gróðæri. Hvað hefur breyst?
Blogg
HVAÐ HEFUR BREYST VIÐ LAUGAVEG?
11:56 › 15. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
