ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ANNAÐ SVAR FRÁ DÓMSMÁLARÁÐHERRA

09:34 › 15. júní 2009


Ég hef nú fengið annað svar frá Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra varðandi Geirfinnsmálið.

Eins og fram hefur komið hér taldi hún skorta lagaheimild til að taka málið upp að nýju en gaf þó til kynna að sér þætti ástæða til þess.

Ég spurði því aftur hvað hún sjálf hygðist gera í málinu.

Í svari Rögnu segir: "[Þ]etta er ég að skoða og íhuga. Ég þarf að vanda mig því ég vil sem endranær ekki gefa neinum falskar vonir með að slá einhverju fram sem ég get svo ekki staðið við."

Ennfremur segist hún hreinlega ekki hafa haft tíma til að huga sem skyldi að þessu máli, en lofar að gera það við fyrsta tækifæri, eða þegar "rólegri dagar taka við (!)".

Þetta svar dugar mér alveg í bili. Ég get ekki annað en fallist á að töluverðar annir séu hjá dómsmálaráðherra núna. En ég mun hins vegar halda málinu vakandi þar til einhvers konar niðurstaða er fengin.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?