15:25 › 14. júní 2009
"Hann var mikill lánsmaður," var einu sinni sagt um gæfusama menn.
Nú er hægt að nota þessi orð um Sigurjón bankastjóra.
Það hljómar alla vega betur en "Sigurjón digri" eins og menn hafa kallað hann hingað til.
Hvað þá "svitastorkna tólgarstrumpinn" eins og einn snillingurinn gerði.
En meðal annarra orða:
Ef maður brúkaði bara Ríkisútvarpið eða læsi bara Mbl.is, þá mundi maður ekkert vita um Sigurjón lánsmann.
Því í þessum fjölmiðlum hefur ekki, svo ég sjái, verið minnst á nein hans mál.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
