Andrés Jónsson skrifaði fyrr í dag ágætan pistil, "Af hverju ekki?", um um árásirnar sem Eva Joly hefur sætt að undanförnu, sem og fjas sem verður stundum vart í garð Egils Helgasonar og fleiri sem gagnrýna varðmenn hins hrunda kerfis.
Lára Hanna er á svipuðum nótum í þessum pistli hér.
En ég hnaut sérstaklega um þessi orð í pistli Andrésar:
"Ég gæti rifjað upp afar ósmekkleg, ósanngjörn og beinlínis ósönn ummæli sem íslenskir bankastjórar, forstjórar, forsætisráðherrar og forsetar hafa látið falla um ýmsa óæðri hópa og einstaklinga.
Þar gæta menn ekki beinlínis orða sinna."
Þetta er ágæt ábending hjá Andrési. Snobberíið meðal "efri laga samfélagsins", eins og hann kemst að orði, er ugglaust meira en við viljum vera láta.
En nú eru þeir tímar að mér finnst að Andrés ætti óhikað að rifja upp þessi ummæli, ekki bara segjast geta það eða hóta því.
Já, af hverju ekki?
Blogg
JÁ, AF HVERJU EKKI?
16:31 › 14. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
