ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

MEÐ FORMSATRIÐIN AÐ VOPNI

09:04 › 13. júní 2009


Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður skrifaði grein á Pressuna.is þar sem hann hæddist að Evu Joly og málflutningi hennar.

Á Eyjunni.is (sérlegum keppinaut Pressunnar, sýnist mér) er tekið fram að Sigurður hafi birt grein sína "eftir miðnætti". Alltaf þegar það er tekið fram er verið að gefa í skyn að greinarhöfundur hafi verið fullur þegar hann samdi greinina, en ég skil ekki af hverju Eyjan vill endilega láta að því liggja.

Það hlýtur nú að mega gagnrýna Evu Joly (hana, þarna skrifaði ég enn eina ferðina Eva Holy - sjá þessa játningu), án þess að vera sjálfkrafa sakaður um að vera dauðadrukkinn!

En þótt ekki hvarfli að mér að Sigurður hafi verið fullur þegar hann skrifaði pistil sinn, þennan hér, þá er ekki þar með sagt að gagnrýni hans og hæðni eigi mikinn rétt á sér.

Hann jafnar (undir rós) starfi hennar við að aðstoða við sakamálarannsókn bankahrunsins við ráðningu Karls Schutz sem hingað kom frá Þýskalandi á áttunda áratugnum til að "leysa" Geirfinnsmálið - með skelfilegum afleiðingum. Sjá allt um það hér.

Lærdómurinn sem hann vill draga - án þess að segja það beinlínis - er að við eigum ekki að treysta útlendingum til að rannsaka okkar mál.

Heldur væntanlega fara okkar "sér-íslensku leiðir" sem alltaf hafa gefist svo vel!

En ég verð nú að segja að mér þykir heldur langt seilst hjá Sigurði að líkja Evu Joly við þann gamla SS-foringja Schutz sem hingað var fenginn til að þjarma að nokkrum ráðvilltum og varnarlausum ungmennum í Guðmundar- og Geirfinnsmálum.

Hún stendur aftur á móti andspænis auðkýfingum sem að minnsta kosti til skamms tíma vissu ekki aura sinna tal. Og hafa herskara lögfræðinga í sinni þjónustu.

Ég sé ekki hvað er sambærilegt við þetta tvennt.

Það er þó rétt hjá Sigurði G. Guðjónssyni að auðvitað eigum við ekki að leggja á hilluna hina gullnu reglu að allir séu saklausir uns sekt þeirra er sönnuð - en honum þykir Eva Joly hafa gengið alltof hressilega fram í því að álykta að útrásarvíkingar og aðrir auðkýfingar séu sekir um glæpi.

Vissulega hefur Eva Joly tekið sterkar til orða en íslensk hefð mundi kveða á um - en er það ekki bara allt í lagi? Hún fylgir þar frönskum hefðum, trúi ég, og getur ekki verið að útlenskar hefðir eigi í sumum tilfellum allt eins mikinn rétt á sér og íslenskar?

Hafa okkar hefðir alltaf lukkast svona líka ferlega vel?!

Og Eva Joly hefur raunar vandlega gætt sín á því að nafngreina enga þá sem hún gruni um efnahagsbrot og auðgunarglæpi.

Hún talar bara um að glæpir hafi augljóslega verið framdir. Eitthvað í þá áttina.

Nú þegar er ljóst að hún hefur unnið landsmönnum mikið gagn. Margvíslegar rannsóknir eru farnar af stað.

En muniði hvernig ástandið var þegar hún kom?

Hinn sérstaki saksóknari hringlaði einn og yfirgefinn á einhverri skrifstofu og hafði ekki einu sinni fengið síma. Allar hans hillur voru tómar.

Hann virtist eiga í mestu vandræðum með að halda sér vakandi.

Ég minnist þess ekki að Sigurður G. Guðjónsson hafi þá skrifað neinn pistil - hvorki fyrir né eftir miðnætti - til að hneykslast á því hve réttlætinu væri illa þjónað.

Nei, hann þagði þunnu hljóði.

Núna kveður hann sér aftur á móti hljóðs. Og finnst það hneisa hve duglega Eva Joly gengur fram.

Sjálfur hef ég svo sem engar forsendur til að álykta neitt um málið fyrirfram.

Í aðra röndina hef ég á tilfinningunni að ekki verði öllum þeim að ósk sinni sem vonast til að sjá íslenska útrásarvíkinga leidda fram hvern af öðrum í handjárnum.

Í hina röndina held ég að það sé þó engum blöðum um að fletta að verði farið í saumana á hátterni sumra auðmanna vorra, einkum undir lokið, þá muni finnast þar lögbrot, og bæði mörg og stór.

Og þá er algjörlega nauðsynlegt að rannsaka þau málið alveg oní kjölinn, og velta við hverjum steini.

Það er að verða tugga - en hún er jafn sönn fyrir því: Eina leiðin til að íslenska þjóðin sætti sig við þær byrðar sem meðal annars útrásarvíkingar og auðmenn hafa búið henni, er að allt verði gert upp.

Réttlætið eitt verði látið ríkja.

Eva Joly er vafalaust ekki drottinn allsherjar. Hún hefur vafalaust sína galla. En hún veit áreiðanlega miklu meira um efnahagsbrot en jafnvel okkar færustu menn - og því eigum við að hlusta á allt sem frá henni kemur af stakri athygli.

En nú virðist sem eigi að grafa undan henni með formsatriðin að vopni eins og þeir hafa allir gert síðustu dægur, Sigurður G. Guðjónsson, Brynjar Níelsson, Ólafur Arnarson og Valtýr Sigurðsson.

(Og eins og Jónas Fr. Jónsson, Páll Hreinsson og Tryggvi Agnarsson hafa reynt að grafa undan Sigríði Benediktsdóttur í rannsóknarnefnd Alþingis.)

En ef Eva Joly annars vegar og "okkar menn" hins vegar eru ósammála, þá - fyrirgefiði mér fjórtán sinnum - hef ég tilhneigingu til að trúa frekar henni en þeim.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?