ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HEPPILEGUSTU KENNARARNIR?

20:49 › 13. júní 2009


Ég kann ekki vel við að setja mig á of háan hest.

Og mér er í raun og sannleika illa við að segja eitthvað sem túlka má þannig að ég sé að heimta að einhverjum sé sagt upp vinnunni.

En ég verð að viðurkenna að það læðast að mér efasemdir um að þessi fyrrverandi bankastjóri sé endilega rétti maðurinn til að kenna ungu fólki viðskiptafræði.

En Sigurjón Þ. Árnason hefur víst fengið það hlutverk hjá Háskólanum í Reykjavík.

Þetta segi ég að sjálfsögðu með þeim fyrirvara að þessi dularfulla transaxjón sé í rauninni eins og til dæmis hérna eru líkur leiddar að. Eða þá hérna.

En sé svo, þá leyfi ég mér líka að setja fram þá skoðun að lögmaðurinn sem annaðist þennan gjöring fyrir Sigurjón er kannski heldur ekki endilega rétti maðurinn til að kenna Evu Joly lögfræði - eins og Jónas Kristjánsson ýjar að hér.

- - - - -

Viðbót: Vefsíðan Hvítbók fullyrðir raunar að Sigurjón kenni ekki viðskiptafræði við HR, en hefur ekki upplýsingar um hvaða pensúmi honum var þá treyst fyrir við skólann.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?