ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SÉR STJÓRNIN EKKI TÆKIFÆRI SITT?

12:43 › 12. júní 2009


Ég er farinn að halda að ríkisstjórnin geri sér enga grein fyrir því hvaða tækifæri hún er nú með í skjálfandi höndunum.

Það er hvorki meira né minna en tækifæri til að gerbylta fúnu, úreltu og gegnumrotnu stjórnkerfi Íslands.

Sem hefur leitt okkur út í þær ógöngur sem við erum nú stödd í.

Af því kerfið var öngan veginn í stakk búið til að halda aftur af deleríum útrásarvíkinga og bankaglanna.

Heldur tók fullan þátt í fimbulfambi þeirra.

Núna held ég að mér sé óhætt að segja að mjög stór meirihluti þjóðarinnar mundi fagna því ótvírætt og heilshugar ef gjörsamlega yrði skipt um kúrs.

Öll vinnubrögð endurskoðuð. Hreinsað út úr trénuðu embættiskerfinu. Öllum hefðum varpað á haugana - eða að minnsta kosti kannað gaumgæfilega og fordómalaust hvort eitthvert gagn sé í þeim.

Eða hvort þær séu bara til trafala.

En ríkisstjórnin virðist ekki skilja þetta.

Það er eins og hún tipli á tánum í kringum kerfið - í stað þess að æða þar inn með hurðaskellum og þjósti. Kústinn og flórskófluna á lofti. Til að hreinsa ærlega út.

"Loft, loft, gefið lífsanda loft," orti séra Matthías Jochumsson.

Þannig er stórum meirihluta þjóðarinnar innanbrjósts núna. Það get ég fullyrt, þó vísast sé ég ekki þjóðin!

Ef ríkisstjórnin gengur rösklega til verks, og óhrædd, verður hún víðfræg og dáð í íslenskri sögu.

Ef ekki, þá fær hún þessi eftirmæli: "Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur reyndi að fást við eftirköst bankahrunsins en hafði ekki til að bera nægilega dirfsku til að hreinsa almennilega til í kerfinu."

Ríkisstjórnin hefur enn tækifæri til að sleppa við þessi eftirmæli. En þá verður hún að fara að fatta hve tækifærið er stórt.

Og hún þarf ekki að sýna úreltu kerfi kurteisi.

Eins og maðurinn sagði: "Yes, we can."



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?