ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SAKNAR ÞEIRRA EINHVER?

15:43 › 12. júní 2009


Þorsteinn Pálsson ritstjóri kveður lesendur Fréttablaðsins með leiðara þar sem hann hreyfir gömlu hugmyndinni um þjóðstjórn.

Það sé við svo mikla erfiðleika að glíma í íslensku þjóðlífi að það þýði ekkert annað.

Og Þorsteinn bætir við að vel gæti farið á því að "kalla á mann utan við vettvang stjórnmálanna" til að veita þessari þjóðstjórn forstöðu.

Þar hlýtur Þorsteinn að eiga við annaðhvort sjálfan sig eða Davíð Oddsson!

En svona í alvöru talað, þá finnst mér þetta mjög lummó hugmynd hjá Þorsteini á þessum tímapunkti.

Ég get ómögulega séð að það mundi á einhvern hátt auðvelda landstjórnina að fá vel lemstraða og komplexaða flokka sjálfstæðismanna og framsóknarmanna að ríkisstjórnarborðinu.

Þorsteinn hefur undanfarið skrifað marga skynuga og vel orðaða leiðara, en ég held að þessi sé ekki einn þeirra.

Það sem þarf er að núverandi ríkisstjórn taki á sig rögg, meðal annars þannig að hún tali meira við þjóð sína og hafi meira samráð við stjórnarandstöðuna. Hún hefur fullt umboð til að taka til hendinni, þó hún virðist stundum varla átta sig á því.

Það þarf ekki fleiri hendur, bara röskari.

En mig langar ekkert að hleypa sjálfstæðismönnum og framsóknarmönnum alveg óverðskuldað aftur að valdastólum.

Saknar þeirra einhver, með leyfi?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?