Ég var rétt í þessu að kíkja inn á heimasíðu embættis ríkissaksóknara.
Þar kemur fram að ríkissaksóknari sé Valtýr Sigurðsson.
Sjáiði bara hér.
Ég varð þrumu lostinn.
Í gær virtist Valtýr að vísu ætla að taka davíð á allar gagnrýnisraddir. "Að taka davíð á eitthvað" þýðir að þráast við, sérstaklega í merkingunni að sitja áfram í starfi þó allir vilji losna við mann.
En ég hélt að eftir að hafa sofið á þessu heila nótt hlyti Valtýr að átta sig á að hans persóna skipti ekki miklu máli í hinu stóra samhengi hlutanna.
Það skipti meira máli að hreinsa til í samfélaginu en að einn einstaklingur héldi starfi sínu.
Hversu vammlaus sem Valtýr kann að vera persónulega.
Og í Kastljósi í gærkvöldi vöknuðu reyndar svolitlar efasemdir um það. Sjá hérna. Þarna er um að ræða mál sem snertir undarlegan trassaskap ríkissaksóknara varðandi gamla Kaupþing. Sem var að stórum hluta í eigu Exista. Og forstjóri Exista er sem kunnugt er ... sonur ríkissaksóknara.
Þetta mál hefði átt að eyða öllum efasemdum úr huga Valtýs um að hann sé kannski ekki akkúrat maðurinn til að sitja á stóli ríkissaksóknara núna.
En heimasíðan virðist benda til að hann sé þarna enn.
Undarlegt.
Blogg
ERTU HÉR ENN, VALTÝR?
10:58 › 12. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
