Það verður að útkljá þetta rugl innan rannsóknarnefndar Alþingis.
Nú er komið á daginn að það var strax sama dag og ofurmennið Jónas Fr. Jónsson kvartaði undan Sigríði Benediktsdóttur sem þeir hringdu í ofvoði í Sigríði, þeir Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson, og heimtuðu að hún segði umsvifalaust af sér.
Af því að hún hafði leyft sér að segja í viðtali við bandarískt stúdentablað:
"Ég er ekki með hýrri há út af þessu hruni; mér finnst það stafa af geysilegri græðgi af margra hálfu og makráðu kæruleysi [reckless complacency] þeirra stofnana sem áttu að fylgjast með [peningamarkaðnum] og sjá um fjárhagslegan stöðugleika í landinu."
Jónas Fr. Jónsson taldi illa að sér vegið með þessum ummælum.
Maðurinn var forstjóri Fjármálaeftirlitsins þegar yfir gekk mesta hrun á fjármálamarkaði sem vestrænt ríki hefur mátt þola.
Og hann þykist hafa efni á að verða móðgaður þegar einn þeirra sem hefur fengið það verkefni að taka til eftir hann lætur falla svo almælt tíðindi!
Og Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson hlaupa upp til handa og fóta.
Það er ótrúlegast í málinu. Þeir rjúka strax í símann og heimta að Sigríður segi af sér. Og ljúgi upp einhverju um ástæður þess.
Hvad er meningen? eins og það var svo vel orðað í dönsku Andrésblöðunum í gamla daga.
Af hverju er ekki þegar búið að reka þessa kalla öfuga heim til sín? Er eftir einhverju að bíða?
Menn sem taka svona mikið mark á kveini úr Jónasi Fr. Jónssyni hafa ekki bein í nefinu til að sitja í rannsóknarnefnd vegna hrunsins.
Blogg
EFTIR HVERJU ER VERIÐ AÐ BÍÐA?
09:30 › 12. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
