ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HRAÐI OG ÓNÝTT EMBÆTTISMANNAKERFI

20:37 › 11. júní 2009


Eitt og þó kannski tvennt geta íslenskir ráðamenn lært af fjaðrafokinu sem reis út af ummælum Evu Joly í sjónvarpinu í gærkvöldi.

Að grípa til aðgerða STRAX og í ljós kemur að aðgerða er þörf.

Enginn fer fram á að ráðherrar og aðrir ráðamenn séu alfullkomnir. En við ætlumst til að þeir geti haft hraðar hendur.

Séu ekki sífellt að þumbast við.

Vonandi að þessi lexía verði þeim ekki gleymd strax á morgun.
Þeir þurfa að muna að þeir þurfa að gera ALLT sem Eva Joly fer fram á. Hún hefur ansi mikið miklu meira vit á hvernig svona rannsókn þarf að vera úr garði gerð, heldur en ráðvilltir íslenskir ráðamenn.

Hin lexían er að íslenskt embættismannakerfi er ónýtt.

Embættismennirnir eru örugglega allir mjög prúðir og kunna allar kurteisisreglur. Og innan um eru eflaust einhverjir sem kunna sitt starf.

En kerfið sjálft er ónýtt, byggt á spillingu, klíkuskap og sjálfumgleði.

Þar þarf að spúla ærlega út.

Og eins gott að byrja strax að afla lagaheimilda til þess, svo við sitjum ekki uppi með marga Baldra Guðlaugssyni í vinnu.

Án þess að hafa nokkurn áhuga á því.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?