11:10 › 11. júní 2009
Jóhanna Sigurðardóttir virðist hafa tekið af skarið hér, þannig að ekki verði um villst.
Hér er skýrt tekið til orða um að farið verði að öllum ráðleggingum Evu Joly.
Ekki hægt að bakka neitt með það.
Það er til fyrirmyndar.
Jóhanna ætti oftar að láta að sér kveða.
Á hinn bóginn verð ég að segja að ég hef orðið fyrir djúpum vonbrigðum með viðbrögð Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara.
Eins og þetta sýnir, bera viðbrögð hans keim af hroka.
Valtýr verður að skilja að þetta snýst ekki um hans persónu.
Hann fær eflaust góð eftirlaun.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
