ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FREUDÍSKAR INNSLÁTTARVILLUR

21:48 › 11. júní 2009


Ætli innsláttarvillur séu ekki "freudískar" eins og aðrar villur?

Á tímabili var ég farinn að hafa áhyggjur af því hve niðurstaðan varð oft "maur" þegar ég ætlaði að skrifa "maður".

Ð-ið vildi oftar en ekki detta út.

Sýndi þetta dulda mannfyrirlitningu frá minni hendi?

Fannst mér, þrátt fyrir allt, að maðurinn væri bara aumur, skitinn maur?

Núna hef ég síðasta sólarhring alloft þurft að skrifa nafnið Eva Joly í bloggglefsur.

Og nánast alltaf geri ég sömu innsláttarvilluna.

Skrifa Eva Holy.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?