Ríkisstjórnin á að fara að hverju ráði Evu Joly um hvernig standa beri að sakamálarannsókn á bankahruninu og viðskiptalífinu.
Eins og ég hef áður sagt: Ekki bera fyrir sig kostnað. Það er nokkuð víst, eins og Eva Joly sagði sjálf, að þeir peningar sem lagðir eru í slíka rannsókn skila sér til baka.
Þó má kannski velta upp einu í sambandi við kostnað.
Ef þessi rannsókn er svona gríðarlega mikilvæg fyrir alla Evrópu eins og Eva Joly og fleiri hafa sagt, væri þá kannski möguleiki að einhverjar vinaþjóðir sem hagsmuni hafa að gæta legðu svolítið í púkk til rannsóknarinnar?
Til dæmis okkar frábæru vinir Bretar og Hollendingar?
Blogg
FLEIRI AÐ LEGGJA Í PÚKKIÐ?
08:40 › 11. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
