ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ER RÍKISSTJÓRNIN HÁLFGERT DRASL?

10:04 › 11. júní 2009


Andrés Jónsson skrifar athyglisverðar bloggfærslur frá Gulleyju sinni.

Andrés er jafnaðarmaður og styður yfirleitt Samfylkinguna, hefur mér virst.

Og hann leggur sig augljóslega í framkróka um að vera jákvæður og uppbyggilegur.

Þegar hinn glaðsinna Andrés skrifar á þá leið um núverandi ríkisstjórn að hún sé "hálfgert drasl", þá mundi ég - ef ég væri ráðherra eða þingmaður stjórnarinnar - fara að hafa áhyggjur.

Miklar áhyggjur.

Hann skrifaði í gærkvöldi:




"Ég var mjög bjartsýnn á þessa ríkisstjórn eftir kosningar.

En trú mín á henni fjarar hratt út.

Hún virðist veik. Hefur eiginlega enga rödd. Hefur í þokkabót lítið sem ekkert vald yfir embættismannakerfinu. Bugtar sig og beygir fyrir því.

Þetta er hálfgert drasl, þessi stjórn

—–

Og þessir stjórnmálamenn sem við erum nýbúin að kjósa trúnaðarstarfa, þeir virðast ekki telja sig þurfa að taka þátt í neinni pólitík.

Á meðan að hver dagmamma og hver leigubílstjóri sitja og ræða Icesave út í ystu æsar, þá blanda þingmenn sér lítið sem ekkert í þær umræður.

—–

Eini maðurinn sem svarar í fjölmiðlum er Steingrímur J. Sigfússon.

Rennur ekki blóðið í restinni af liðinu?"



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?