ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÉG ER MAÐUR ÁRSINS

13:47 › 11. júní 2009


Ég hef verið valinn "maður ársins" á Íslandi.

Þetta var mér tilkynnt með bréfi sem barst inn um lúguna í dag.

Það eru bandarísk samtök sem standa að valinu og ég var valinn eftir mikla umræðu millum háskólamanna, viðskiptajöfra, útgáfufyrirtækja, fjölmiðla og annarra fyrirtækja.

Og ekki bara á Íslandi, heldur um veröld víða.

Allir voru sammála um að ég og enginn annar en ég ætti skilið að teljast "maður ársins".

Ég skal fúslega viðurkenna að þessi sæmd kom mér örlítið á óvart.

Auðvitað get ég verið ánægður með mig, svona rétt eins og hver annar. Og vissulega hef ég verið á þönum við að reyna að láta gott af mér leiða!

En eftir alveg sérstaklega viðburðaríkt ár í sögu Íslands, þá hefði ég nú frómt frá sagt ekki endilega kosið sjálfan mig sem "mann ársins".

Eða hvað? Gat verið að ég ætti þetta kannski einmitt skilið?!

En auðvitað var þetta bara bull og blekking.

Ég vona að ég þurfi ekki að taka fram að auðvitað fattaði ég það um leið.

Þetta var bréf frá amerísku svindlfyrirtæki, sem virðist kalla sig The American Biographical Institute.

Í gamla daga fékk ég stundum bréf frá svipuðu fyrirtæki sem var alltaf að bjóða mér að senda upplýsingar um mig í glæsilegar uppsláttarbækur um afburðafólk víða um veröld.

Svo var mér boðið að kaupa uppsláttarbókina dýrum dómum.

Í þetta sinn nenna þeir ekki einu sinni að líma saman einhverja þykjustu uppsláttarbók um einhver nóboddí sem enginn mun lesa.

Nei, nú bjóða þeir mér fallegan veggspjöld úr kirsuberjaviði og íbenholti, þar sem nafnið mitt verður letrað gylltu letri og tilkynnt að ég sé "maður ársins á Íslandi".

Þetta á ég svo væntanlega að hengja upp á vegg hjá mér.

Og horfa stoltur á - þegar mestur bömmerinn sækir til dæmis að, þá get ég hugsað: "Ég var þó alla vega valinn maður ársins á Íslandi. Mikils er ég metinn!"

Fyrir þetta á ég að borga 295 dollara. Ég nenni ekki að reikna út hvað það er mikið í hinni dauðu íslensku mynt - enda skráningin alltaf á leiðinni neðar og neðar.

Væntanlega hafa margir aðrir en ég fengið svona "tilboð" með póstinum í dag. Ég vona bara að enginn láti blekkjast.

En það þarf sýnilega ekki Nígeríumenn til að stunda óforskammað svindl. Né Íslendinga.

Þar sem þetta barst frá guðs eigin landi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?