ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

DÓMSMÁLARÁÐHERRANN OG DÍNAMÍTKASSINN

13:36 › 11. júní 2009


Jónas Kristjánsson skammar Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra blóðugum skömmum hér.

Kallar hana Björn Bjarnason undir dulnefni.

En það finnst mér ekki sanngjarnt.

Ragna er kannski ekki beinlínis blóðrauður byltingarmaður í eðli sínu, en mér sýnist hún hafa sýnt margvíslega jákvæða viðleitni síðan hún tók við starfinu.

Hún svarar, sýnist mér, af einlægni og hreinskilni þegar hún er spurð um eitthvað, en hefur ekki tileinkað sér stærilæti hins þrautþjálfaða stjórnmálamanns.

Og viðtal Þóru Kristínar við hana (sjá hér) um upphlaup Evu Joly í gærkvöldi er ósköp heiðarlegt. Og lýsingin á Evu Joly sem "dínamítkassa" er glúrin.

En nú þegar sprenging hefur orðið, þá ætti Ragna líka að taka ærlega til hendinni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?