Sjálfsagt eru það samantekin ráð hjá nokkrum af okkar fremstu hagfræðingum að tvímenna á Morgunblaðið og Fréttablaðið og lýsa stuðningi við að Sigríður Benediktsdóttir sitji áfram í rannsóknarnefnd Alþingis um efnahagshrunið.
Þótt Páll Hreinsson vilji ólmur reka hana - af því Jónas Fr. Jónsson fyrrum forstöðumaður Fjármálaeftirlitsins móðgaðist við ummæli hennar í amerísku stúdentablaði.
Í Moggann skrifa Jón Daníelsson og Gylfi Zoega, í Fréttablaðið Gauti B. Eggertsson og Jón Steinsson. Eða var það öfugt?
Alla vega, sjónarmið þeirra allra eru auðvitað hárrétt.
Ég hef reyndar sannfærst æ betur um það, eftir því sem lengra líður frá því þetta "mál" kom upp, að Sigríður hefur nákvæmlega ekkert til "saka" unnið.
Ummæli hennar voru ekki einu sinni "óheppileg". Þau voru bara sjálfsögð og eðlileg.
Í fyrsta lagi er deginum ljósara að eftirlitsaðilar brugðust. Á öllum póstum.
Í öðru lagi er mjög brýnt að hafa í huga að þetta er rannsóknarnefnd, ekki dómstóll. Rannsóknarnefnd í ætt við rannsóknarnefndir bandaríska þingsins, þó ekki sé það að öllu leyti sambærilegt.
Og þar leyfa meðlimir nefndanna sér svo sannarlega að lýsa skoðunum sínum á þeim málum sem til rannsóknar eru.
Því ekki hér?
Nei, það væri reginhneyksli ef Sigríður væri neydd úr nefndinni. Það hefur nú þegar lýst miklu skilningsleysi Páls Hreinssonar á eðli þess starfs sem hann á að vera að vinna að hann skuli yfirleitt hafa reynt að neyða hana til að segja af sér.
Blogg
HAGFRÆÐINGAR TVÍMENNA
08:52 › 10. júní 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
