ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

BRÉF TIL RÍKISSTJÓRNARINNAR

20:31 › 10. júní 2009


Gott kvöld, ríkisstjórn.

Eins og þið, horfði ég á viðtal við Evu Joly í Kastljósi í kvöld.

Og nú vil ég biðja ykkur um eitt, og aðeins eitt.

Gerið allt sem konan biður um.

Allt.

Ekki malda í móinn.

Ekki reyna að finna milliveg.

Ekki leita að málamiðlunum.

Ekki bera fyrir ykkur kostnað. Þið teljið ekki eftir ykkur að hafa vel launað starfsfólk hjá hinum frægu skilanefndum. Af hverju að spara við rannsóknina?

Ekki móðgast yfir því að Eva Joly fari óhefðbundnar leiðir. Fari í viðtal í sjónvarpinu og tali við þjóðina í staðinn fyrir að tala við ykkur bak við luktar dyr.

Ekki móðgast yfir því að hún tali ekki eins og innmúraður og innvígður íslenskur kerfiskall.

Bara yfirleitt ekki móðgast yfir neinu.

Gerið bara það sem konan biður um.

Allt.

Og gerið það strax.

Í guðs almáttugs bænum, ekki fara að þumbast við.

Hika.

Drepa á dreif.

Nei - nú er tími til að gera.

Gera ...

Hugsið ykkur bara hvað það verður gaman.

Frelsandi, jafnvel.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?