Í dag verður til moldar borinn norður í Trékyllisvík Guðmundur Jónsson bóndi í Stóru-Ávík.
Seinni árin sem ég var í sveit í Ávík réði Guðmundur þar ríkjum ásamt sinni góðu konu Huldu Kjörenberg. Þau voru þá að taka við búinu af foreldrum Guðmundar, Jóni bónda Guðmundssyni og Unni Jónsdóttur.
Guðmundur var mikill atorkumaður, hamhleypa til verka og undir hans stjórn fékk enginn að liggja á liði sínu.
En mest var þó um vert að hann var firna skemmtilegur, hláturmildur svo frægt var út fyrir sveitina, og í brjósti hans bjó hin græskulausa hjálpsemi sem ætíð reyndi að greiða götu hvers manns.
Hrafn bróðir minn tók við af mér í Stóru-Ávík og kynntist Guðmundi ennþá betur en ég; hann hefur lýst okkar gamla húsbónda svo eftirminnilegt er í bókinni sinni góðu, Þar sem vegurinn endar. Og ég hvet fólk til að lesa til að kynnast sönnum Íslendingi.
Ég sendi allan minn hlýhug norður til ástvina hans þegar þeir fylgja honum síðasta spölinn í dag.
Blogg
MINNING UM GÓÐAN MANN
09:17 › 9. maí 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
